Hjá Steypustöðinni er fyrst og fremst framleidd steypa, en einnig hellur og einingar.
Steypustöðin framleiðir steypu í Reykjavík, Hafnarfirði og á Selfossi. Helluframleiðslan fer fram í Hafnarfirði og hefur mjög góður árangur náðst þar á því sviði. Einingaframleiðslan er einnig í Hafnarfirði og hefur áhersla verið lögð á garðalausnir og sérsteyptar einingar.
Einnig hefur Steypustöðin fengist við sérstaka framleiðslu og má þar nefna sorptunnuskýli, kantbekki og í raun allt sem viðskiptavininum dettur í hug og er úr steypu.
Steypuframleiðslan á Selfossi þjónustar allt Suðurlandið.