Tíu grunnreglur:
Til þess að tryggja endingargóða hellulögn úr steinsteyptum hellum.
1. Fylgja skal öllum eftirfarandi reglum um niðurlögn
Til að tryggja endingargóða hellulögn úr steinsteyptum hellum þarf nægjanlega þykkt og þjappað, frostfrítt burðarlag og 3 til 5 cm laust sandlag (mesta kornastærð 4mm), til að leggja hellurnar í.
2. Hellulögn og burðarlag þarf að hafa að minnsta kosti 2,5 % halla
Sami vatnshalli þarf að vera á burðarlagi og á hellulögninni. Gætið þess að vatnshallinn sé a.m.k. 2.5% og frávik frá sléttu yfirborði sé ekki meiri en 1 cm á 4 m.
3. Slétt og rétt uppbyggt burðarlag úr frostfríu efni
Þjappið burðarlagið og lagfærið yfirborðið þannig að það sé slétt og í réttri hæð. Yfirborð burðarlagsins þarf að vera svo þétt í sér að lausa sandlagið, undirlagið sem hellurnar eru lagðar í sáldrist ekki niður í það. Snjóbræðsla í hellulögn á að vera í burðarlaginu, 15 cm fyrir neðan yfirborð hellulagnar.
4. Frostfrítt undirlag
Þegar burðarlagið er tilbúið, skal leggja undirlagið.
• Undirlagið verður að vera 3 til 5 cm þykkt eftir þjöppun. Hellur og steina skal leggja á þetta óþjappaða útdregna sandlag . Þetta gildir fyrir allar þykktir af steinum og hellum.
• Undirlagið verður að passa við burðarlagið og fúguefnið sem er notað. Það má ekki sáldrast niður í burðarlagið né fúguefnið niður í undirlagið.
• Undirlagið, þ.e. lausa sandlagið, þjappast eftir að hellur/steinar hafa verið lagðar/ir.
• Nauðsynlegt er að vatn geti lekið niður úr undirlaginu. Fínna efni geti ekki gengið ofan í grófara efni í laginu fyrir neðan, burðargeta sé tryggð og þjöppun sé nægjanleg.
5. Kantur
Gott er að nota hellurnar/steinana sem á að nota til þess að ákvarða staðsetningu kantsteina. Það er gert þannig að áður en niðurlögnin hefst, eru með hæfilegu millibili, lagðar hellur/steinar í þá breidd sem á að helluleggja. Sumar tegundir kantsteina þurfa undirstöður og styrkingu úr steinsteypu.
6. Skoða skal hellurnar vel áður en þær eru lagðar
Berið saman afhendingarseðil og pöntunarseðil (form, lit, yfirborð, magn o.s.frv.). Hafið samband við Steypustöðina ef ósamræmis gætir áður en hellulögn hefst. Smávægilegar kalk útfellingar geta verið á steininum en þær má auðveldlega hreinsa af með mildri sýrulausn.
7. Leggja skal hellurnar með 3ja til 5 mm fúgum og blanda saman úr mismunandi pakkningum.
Fjarlægðarrendurnar sem eru á steinunum eiga ekki að ákvarða fúgubreiddina. Fúgan á milli steinanna á að vera 3 til 5mm. Færið hellurnar/steinana aðeins til ef jafna þarf bilið milli þeirra. Steinsteypa er framleidd úr náttúrulegum efnum, þar af leiðandi getur verið blæbrigðamunur á lit og áferð. Þess vegna þarf að blanda saman hellum/steinum úr mismunandi pakkningum til þess að jafna út hugsanlegan lita/áferðarmismun.
Sagið til hellur/steina, ekki brjóta. Ekki hafa hellur/steina minni en sem nemur hálfri upphaflegri stærð.
8. Fúga með sandi
Fúguefnið sem er sópað ofan í fúgurnar, verður að vera sandur sem er hægt að þjappa, með stærstu kornastærð minni en fúgubreiddin en þó ekki svo fínt að fúguefnið hverfi ofan í undirlagið. Best er að fylla fúgurnar jafn óðum og hellurnar/steinarnir eru lagðar/ir. Umframefni á að fjarlægja áður en þjappað er yfir hellurnar.
9. Þjappa þegar stéttin er þurr
Ef notaðar hafa verið litaðar hellur/steinar eða með yfirborði sem hefur verið meðhöndlað sérstaklega má aðeins nota þjöppu með plötu sem til þess er ætluð. Varast skal að nota of kraftmikla þjöppu. Mælt er með að nota ekki aflmeiri þjöppu en 120 kílóa.
10. Fylla fúgur endanlega
Eftir að það hefur verið þjappað yfir hellulögnina þarf að fylla fúgurnar aftur. Nauðsynlegt er að fylla þær stöku sinnum með sandi. Það er hluti af reglulegri hreinsun og viðhaldi
Útgáfa 18.okt. 2006