Efnislýsing:
Mapecoat I er leysiefnafrítt, 2ja þátta og léttfljótandi epoxy kerfi, hert með formúleruðu polyamíni. Að auki er bætt í málninguna litar- og fylliefnum. Efnið fæst bæði glært og litað, - sjá nánar litakort. Efnisþættirnir eru: Þáttur A (harpiks) og þáttur B (herðir).
Notkunarsvið:
Mapecoat I er notað til gegndreypingar eða sem málning, til styrkingar og sem ofanálag á steinsteypu. Hentar vel á gólf í vörugeymslum, iðnaði, kjöllurum, svölum og sem hlífðarkápa á brúarstólpa, í hreinsibúnað, tanka, fjós o.fl. þ.h.
Upplýsingar:
Pökkun:- 0, 75, 3, 9, 15 Kg sett.
- 1, 4 og 12 Kg sett.
Geymsla: Efnið verður að geyma við frostfríar aðstæður og í óopnuðum upphaflegum umbúðum. Geymsluþol er þá a.m.k.1 ár.
Sjá nánari upplýsingar