Efnislýsing
Mapepoxy MS er mjög kvikt leysiefnafrítt epoxy bindiefni, byggt á léttfljótandi epoxyharpixi og hert með polyamíni.
Notkunarsvið
Mapepoxy MS er notað til fínspörslunar og í epoxymúr sem leggja má í umtalsverðri þykkt á lóðrétta fleti.
Efnið er sigfrítt.
Mapepoxy MS samanstendur af hvítum fljótandi þætti A og svörtum fljótandi (seigkenndum) herði. Við blöndun verður úr grátt epoxybindiefni með sparsleiginleikum.
Efnið er notað til spörslunar, líminga og til viðgerða.
Upplýsingar
Hörðnunartími: 2 - 24 klst. Full hörðnun getur tekið 1 viku. Mapepoxy MS er slípihæft næsta dag. Lágmarks hitastig við lögn og herslu er +5°C.
Umbúðir: Mapepoxy MS er selt í settum: 1 og 2,9 kg.
Geymsluþol: Ef efnið er geymt í óopnuðum umbúðum þá heldur efnið eiginleikum sínum í a.m.k. 18 mánuði
Sjá nánari upplýsingar