Resfoam

Resfoam S 06.03

Polyuretan til innsprautunar.

EFNISLÝSING:
2ja þátta polyuretan til að þétta vatnsleka.

NOTKUNARSVIÐ:
Resfoam S er innsprautunarefni til að stöðva vatnsleka. Resfoam S þenst út sem frauð þegar efnið kemst í snertingu við vatn. Það harðnar einnig við þurrar aðstæður.

NOTKUNARREGLUR:
Resfoam S er 2ja þátta efni. Þáttur A er brúnleitur og þáttur B er glær. Resfoam S verður að hörðu frauði með u.þ.b. 10 faldri þenslu miðað við upphaflegt umfang, í frjálsri þenslu. Resfoam S er notað til að stöðva minniháttar vatnsleka, en við meiri leka er notað Resfoam 1K-M með eða án hröðunarefnis. Við meiriháttar leka skal nota hröðunarefni. Til að ná hámarksárangri skal nota Resfoam S við lokafrágang verksins til þess að ná fram sveigjanlegri einangrun án snertingar við vatn. Resfoam S myndar að lokum samþjappaða og þétta lekavörn. Þenslueiginleikar aukast og seiglan minnkar við hækkandi hitastig. Resfoam S má nota til að ná fram varanlegri þéttingu í steypu s.s.í sprungum og samskeytum. Efnið er tilvalið til sprautunar í þar til gerðum slöngum og vélum með þrýstingi. Litlar háþrýstidælur eru notaðar til innsprautunar á Resfoam S. Resfoam S er sprautað sem einsþáttar efni. Gæta verður varúðar vegna eiginleika efnisins sem þenst út þegar það kemst í snertingu við vatn. Því er ráðlagt að sprauta iðnaðarspritti gegnum slöngurnar áður, til að koma í veg fyrir að efnið þenjist í slöngum og tækjum. Það er mjög áríðandi að þáttunum A+B sé vel blandað saman fyrir notkun. Við blöndun þá skal setja þátt A útí þátt B og hrært með þeytara í þar til gerðum hrærivélum

ÞRIF:
Við hreinsun á tækjum, - notið þá vatnsfrí leysiefni (þynni). Notið ekki iðnaðarspritt eða önnur vatnsleysanleg efni þar sem þau koma af stað þensluferli. Harðnað efni er hægt að plokka af með handafli.

ÖRYGGISRÁÐSTAFANIR:
Vegna heilsu-, umhverfis og öryggisstaðla er bent á HMS upplýsingablöð á www.resconmapei.no

Athugið !

Þær tæknilegu ráðleggingar og leiðbeiningar sem fram koma á þessum blöðum gefa til kynna núverandi þekkingu okkar og reynslu af efninu. Allar upplýsingar ber að skoða sem leiðbeinandi og þær gefa ávallt tilefni til mats. Hver sá sem notar efnið þarf að fullvissa sig um að það hæfi til verksins. Notandinn ber sjálfur ábyrgðina ef efnið er notað til annars en þess sem ráðlagt er og/eða við önnur mistök sem kunna að koma upp.

Efnið notist af fagmönnum !


Tæknileg skilgreining á RESFOAM S. Blöndunar hlutfall: ......................... 58 : 100 í vikt. 1 : 2 í rúmmáli.
Togþol (skv. ASTMD 638) ................................ 2.1 N/mm2
Lengingarþol (við brest) ................................ 60 – 80 %
E-modúll skv. DIN 53487 ................................ 4.3 – 4.6 N/mm2
Styrkleiki (shore) skv. DIN 53505 .................... 60 – 80 A (20 – 30 D)
Seigla við +20°C ............................................ Blöndun: 450 cp 10°C
250 cp 20°C
Notkunartími: ................................... 70 mín. við +10°C45 mín. við +20°Pökkun: ....................................................... Resfoam S : í setti = 3,0 kg
Þáttur A: 1.1 kg Þáttur B: 1.9 kg.
Geymsla: ........................................ Verður að geyma á dimmum og svölum stað (undir +20°C).

Má ekki komast í sólskin.
Geymist þar sem börn ná ekki til.
Þegar efnið er geymt við frostfríar aðstæður og í óopnuðum upphaflegum umbúðum er lágmarks geymslutími 1 ár.


Aðgerðastika


Hafðu samband - Sími: 440 0400

Sölustaðir fyrir hellur:

Reykjavík
Malarhöfða 10
Hafnarfirði
Hringhellu 2
Helguvík
Berghólabraut 9
Selfossi
Hrísmýri 8
Akureyri
Óseyri 2, Finnur ehf.
Ísafjörður
Ártungu 8, Kubbur ehf.
Egilsstaðir
Miðási 43, Plastiðjan Ylur ehf.

Meira um sölustaðina.

Viðhaldslisti
Bæklingur (PDF 1 mb)
Skoða bækling
Múrkerfi
Bæklingur (PDF 1,5 mb)
Skoða bækling
Steypubæklingur
Bæklingur (PDF 0,5 mb)
Skoða bækling
Hellur & garðlausnir
bæklingur (pdf 13,5 mb)
Skoða bækling
Lausnir fyrir bílaplön
bæklingur (pdf 696 kb)
Skoða bækling
Spikma kantsteinar
Bæklingur (PDF 0,7 mb)
Skoða bækling
Recon Stoðveggjakerfi
Bæklingur (PDF 0,6 mb)
Skoða bækling
Skemmtun fyrir börnin!
Smelltu hér

  Opnunartímar:

  Reykjavík
  Malarhöfða 10
  Múrverslun

kl. 8:00 - 17:00
kl. 8:00 - 18:00
  Hafnarfirði
  Hringhellu 2

kl. 8:00 - 18:00
  Helguvík
  Berghólabraut 9

kl. 8:00 - 16:00
  Selfossi
  Hrísmýri 8

kl. 9:00 - 17:00
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is