Hvað er mynstursteypa?
Mynstursteypa er sú aðferð til að forma yfirborð steinsteypu. Hægt er að velja um margar mynsturgerðir
og litasamsetningar sem gefa fallega áferð. Mynstursteypa hefur verið notuð í fjölda ára á svæði sem mikið
mæðir á svo sem í bílastæði, innkeyrslur, göngustíga og garða með góðum árangri.
Helstu kostir mynstursteypu
- Mikil fjölbreytni á mynstrum og litum
- Yfirborðið slitþolið
- Gróður nær ekki festu
- Olía og feiti ná ekki festu
- Auðvelt að þrífa
Mynstursteypu má einnig nota innandyra
Fallegt útlit og slitsterkur flötur gera þessa lausn ákjósanlega fyrir verslanir, bílageymslur, sólskála, svalir, atvinnuhúsnæði og heimili.
Litir og mynstur
Hægt er að ná fram áferð náttúrusteins í ýmsum litaafbrigðum eða halda sig við gráa steypulitinn eins og á venjulegum hellum.
Auk eftirtalinna lita er hægt að sérpanta liti.

Í boði er mikið úrval af mynstri í mynstursteypu sem hægt er að blanda á skemmtilegan hátt. Einnig er hægt að
útfæra persónulega lausn fyrir þig.
Viðhald fyrir mynstursteypu og hellur
Steypustöðin er með efni til viðhalds, bæði fyrir mynstursteypu og hellur frá fyrirtækinu PICS.
- Gróðureyðir
- Þvottaefni
- Yfirborðsmeðhöndlunarefni
Sjá nánari upplýsingar