Efnislýsing:
Rescon Nonset er sementsbundinn þenslumúr sem þenst u.þ.b. 1-3 % við hörðnun. Múrinn er samsettur úr
Portland sementi, sérvöldum sandi, ásamt sérstökum þenslu- og þjálniefnum. Frostþolnu gerðirnar innihalda einnig efni sem koma í veg fyrir að sementið hraðharðni þannig að múrinn veldur ekki sprungumyndunum, jafnvel við frost allt að mínus 25°C.
Notkunarsvið:
Rescon Nonset þenslumúr er notaður til festinga á boltum, til sprautunar og fúgunar ásamt undirvinnu í þykktum frá 5 – 150 mm. Af múrnum eru einkum 2 gerðir:
Rescon Nonset: er notaður við hitastig hærra en + 5°C.
Rescon Nonset FrostFri: er notaður við hitastig lægra en +5°C og í frosti allt að mínus 25°C. Báðar þessar gerðir er hægt að fá í 3 mismunandi útfærslum og hafa þær mismunandi hámarks kornastærð, notkunarsvið og vatnsþörf. Sú með þenslueiginleika veldur þenslu 1 – 3 % og tryggir fullkomna festu og fyllingu í holrúminu
sem fyllt er. Þenslunni lýkur áður en fullri hörðnun er náð eftir 2-3 klst. og veldur ekki frekari spennu í múrnum
Múrinn verður að nota innan 45 mín. til að þenslueiginleikarnir haldist. Eftir hörðnun á að meðhöndla múrinn eins og venjulega steypu. Yfirborðsmeðferð er æskileg til að koma í veg fyrir of hraða þornun. Festiþol Rescon Mapei múrs miðast einnig við og ræðst af lokuðu umhverfi þ.e. að hylja skal t.d. holur þannig að múrinn þenjist ekki “frjálst”. Leggið t.d. þyngda stálplötu yfir opnar holur. Frost-Fri gerðirnar gera kleift að vinna við frost allt að mínus 25°C án hættu á sprungu eða frostskaða. Festihæfi og þol við slíkar aðstæður gengur hægar fyrir sig, en endanleg festa er mjög góð. (sjá línurit í tækniblaði).
Sjá nánari upplýsingar