Steinsteypa
Við hjá Steypustöðinni höfum framleitt steypu síðan 1947. Framleiðslan er í dag í samræmi við kröfur ÍST EN 206-1:2000. Daglega er haft strangt gæðaeftirlit með framleiðslunni. Sýni eru tekin oft á dag og gengið úr skugga um að steypan uppfylli ávallt ströngustu gæðakröfur. Steypustöðin vinnur einnig að öðrum rannsóknum á steypu til að bæta gæði og endingu steinsteypu enn frekar. Starfsmenn rannsóknar- og þróunarsviðs Steypustöðvarinnar veita viðskiptavinum upplýsingar og ráðgjöf varðandi val og meðhöndlun steypu.