Gæða og þróunardeild

Gæða- og þróunardeild


Markmið Gæða- og þróunardeildar er að tryggja bestu gæði samkvæmt nýjustu íslensku stöðlum og veita trausta ráðgjöf.

Við hvetjum viðskiptavini Steypustöðvarinnar til að leita til Gæða og þróunardeildar til að fá ráðgjöf varðandi steypuvörur fyrirtækisins og notkun þeirra.


Öryggisatriði

Gæta þarf vel að öryggi allra sem að steypuvinnu koma. Huga þarf að aðgengi, fallvörnum, hífingum, búnaði og öðrum viðeigandi öryggisráðstöfunum.
Óhörðnuð steinsteypa er ertandi. Varast skal snertingu við húð og augu.


Gæðaeftirlit

Steypustöðin framleiðir steypu í samræmi við kröfur ÍST EN 206-1:2000.

Daglega er haft strangt gæðaeftirlit með framleiðslu fyrirtækisins . Sýni eru tekin oft á dag og gengið úr skugga um að steypan uppfylli ávallt ströngustu gæðakröfur. Steypustöðin vinnur einnig að öðrum rannsóknum á steypu til að bæta gæði og endingu steinsteypu enn frekar. Starfsmenn rannsóknar- og þróunardeildar Steypustöðvarinnar veita viðskiptavinum upplýsingar og ráðgjöf varðandi val og meðhöndlun steypu.

Auk eigin rannsókna og eftirlits annast Nýsköpunarmiðstöð Íslands (áður R.b.) ytra eftirlit með framleiðslu og gæðaeftirliti Steypustöðvarinnar.


Skipulagning

Nauðsynlegt er að skipuleggja steypuvinnuna. Taka þarf tillit til öryggis og þess hvernig vinnan getur farið fram án þess að ógna gæðum. Þá þarf að gera ráð fyrir aðkomu steypubíla og steypudælu ef dæla á steypunni.


Eiginleikar steypu og meðhöndlun hennar

Fersk steypa er viðkvæmt efni og meðhöndlun hennar krefst vandaðra vinnubragða. Miklu máli skiptir að vanda niðurlögn, gæta að því að steypa sé ekki of mjúk, leggja hana ekki niður í of þykkum lögum og titra vel. Athugið að titrarar hafa þann tilgang að titra steypuna en ekki að flytja hana til. Aðhlynning er nauðsynleg fyrir steypuna. Ef hún þornar of hratt tapar hún tæplega 20% af brotþolsstyrk á yfirborði. Þá rýrir of hröð þornun veðrunarþol steypunnar. Sá tími sem steypa þarfnast aðhlynningar veltur á umhverfisaðstæðum s.s. rakastigi, hita og vindi. Við hörðnun rýrnar steypan. Gera má ráð fyrir að hefðbundin steypa rýrni um 0,5% að jafnaði en það þýðir rýrnun um 0,5 cm fyrir hverja 10 lengdarmetra. Til að minnka líkur á sprungumyndun og of hraðri útþornun steypunnar er nauðsynlegt að hlúa vel að henni með því að hafa mót á sem lengst og halda steypunni rakri. Til að minnka sprunguhættu er mælst til þess að fúgum sé komið fyrir með um 8 m millibili.


Steypuvinna í kulda

Þrátt fyrir að Steypustöðin afgreiði steypu í kulda er bent á að óheppilegt er að steypa í frosti. Við slíkar aðstæður er steypan gjarnan upphituð en ekki er talið æskilegt að steypuhiti fari yfir 22°C. Þetta er gert til að hjálpa efnahvörfum í steypunni af stað. Afar mikilvægt er að veita steypunni góða aðhlynningu í kulda. Miklvægt er að hindra útþornun steypunnar strax eftir að hún hefur verið lögð niður. Minnt er á að steypa verður ekki frostþolin fyrr en hún hefur náð að lágmarki 6 MPa styrk. Steypustöðin mælir ekki með því að nota frostlög í steypu.

Þjálni steypu

Til að auka þjálni steypunnar selur Steypustöðin sérvirk þjálniefni sem blandað er í steypuna á byggingarstað. Mikilvægt er að hræra steypuna í tiltekinn lágmarkstíma eftir íblöndun. Miðað er við að hræra steypuna í eina mínútu fyrir hvern m3 sem er í steypubíl, en þó ekki skemur en í 5 mínútur. Minnt er á að óheimilt er að auka þjálni steypu með vatnsíblöndun enda hefur slíkt slæm áhrif á gæði steypunnar og endingu. Mesta leyfilega sigmál fyrir venjulega steypu er 25 cm.


Afhending

Við afhendingu hvers farms skal kaupandi eða fulltrúi hans skoða steypuna og kvitta fyrir móttöku á afhendingarseðil. Ef í ljós kemur við afhendingu að steypunni er ábótavant tekur Steypustöðin hana til baka og afgreiðir nýja steypu kaupanda að kostnaðarlausu. Ef kaupandi telur steypu gallaða eftir niðurlögn skal hann tilkynna það við fyrsta tækifæri.


Steypuprófanir

Rannsóknarstofa okkar er með ýmis tæki til að rannsaka eiginleika ferskrar og harðnaðrar steypu.

Við bjóðum þjónustu rannsóknarstofunnar til viðskiptivina okkar. Til dæmis komum við á stað og mælum rakastig í gólfílögn, sem er mikilvægt áður en byrjað er að leggja parket eða flísar.


Aðgerðastika


Hafðu samband - Sími: 440 0400

Sölustaðir fyrir hellur:

Reykjavík
Malarhöfða 10
Hafnarfirði
Hringhellu 2
Helguvík
Berghólabraut 9
Selfossi
Hrísmýri 8
Akureyri
Óseyri 2, Finnur ehf.
Ísafjörður
Ártungu 8, Kubbur ehf.
Egilsstaðir
Miðási 43, Plastiðjan Ylur ehf.

Meira um sölustaðina.

Viðhaldslisti
Bæklingur (PDF 1 mb)
Skoða bækling
Múrkerfi
Bæklingur (PDF 1,5 mb)
Skoða bækling
Steypubæklingur
Bæklingur (PDF 0,5 mb)
Skoða bækling
Hellur & garðlausnir
bæklingur (pdf 13,5 mb)
Skoða bækling
Lausnir fyrir bílaplön
bæklingur (pdf 696 kb)
Skoða bækling
Spikma kantsteinar
Bæklingur (PDF 0,7 mb)
Skoða bækling
Recon Stoðveggjakerfi
Bæklingur (PDF 0,6 mb)
Skoða bækling
Skemmtun fyrir börnin!
Smelltu hér

  Opnunartímar:

  Reykjavík
  Malarhöfða 10
  Múrverslun

kl. 8:00 - 17:00
kl. 8:00 - 18:00
  Hafnarfirði
  Hringhellu 2

kl. 8:00 - 18:00
  Helguvík
  Berghólabraut 9

kl. 8:00 - 16:00
  Selfossi
  Hrísmýri 8

kl. 9:00 - 17:00
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is