Gólfplan SC25
- SC25 / F5-
Fyrir gólfílögn hefur Steypustöðin þróað lausn sem virkar. Gólfplan SC25 kerfið okkar er tveggja þátta kerfi sem byggt er á Redisit grunni frá Rescon Mapei og sérblandaðri gólfílögn sem inniheldur trefjar. Okkar sérblandaða gólfílögn er í samræmi við ÍST EN 13813:2002.
Í samræmi við ÍST EN 13813:2002
Tæknilegar upplýsingar: Hámarks kornastærð Dmax = 8mm
Þrýstistyrkur >25 MPa
Beygjutogþol >5 MPa
Eðlisþyngd <2100 kg/m3
Varmaleiðnistuðul λ=1,4W/(m*K)
Dælanleg, góðir flæðieiginleikar (200 – 240 mm úr Hagemann keilu)
Yfirborð þarf að jafna/slétta með rörasladdara eða öðrum viðeigandi áhöldum.
Óhætt að ganga á ílögninni eftir tvo daga.
Þolir allt hefðbundið álag eftir 10 daga.
Ráðlögð lágmarsþykkt er 35 mm.
Vatnsþolið (hentar því vel á baðherbergi, í eldhús og í bílskúra).
Tilbúið fyrir flísar eða parket ef rakainnihald efnisins er < 2%.
Mælt er með að allt laust efni sé pússað af yfirborði áður en parket eða flísar eru límdar á gólfið
Undirbúningur: Nauðsynlegt er að hreinsa yfirborð gólfplötu vel áður en gólfílögnin er lögð yfir.
Best er að háþrýstiþvo plötuna og ryksuga hana vel. Gólfplötu skal væta vel í 24- 48 tíma áður en gólfílögnin er lögð.
Grunna undir ílögnina með Reddisit, það er hægt að gera það blautt í blautt.
Þensluborðum skal koma fyrir meðfram öllum veggjum og súlum. Stóra fleti á að steypa í smáum einingum eða saga raufar í ílögnina til að minnka hættu á sprungum. Fjarlægð á milli samskeyta eða raufa á ekki að vera meiri en 8 m.
Niðurlögn: Efnið skal leggja niður með dælu. Áður en niðurlögn hefst skal mæla flæði efnisins.
Efnið á að flæða vel en aðskilnaður á ekki að eiga sér stað.
Þrátt fyrir að efnið flæði vel þarf að nota rörasladdara eða önnur viðeigandi áhöld við niðurlögnina til að ná jafnri og sléttri áferð
Aðhlynning: Til að koma í veg fyrir of hraða uppgufun skal úða aðhlynningarefnum (curing agents) t.d. MapeCure á yfirborðið strax að niðurlögn lokinni eða breiða plast yfir gólfið eins snemma og hægt er.
Hitalagnir: Ef hitalagnir eru til staðar í gólfi þarf að auka þykkt gólfílagnarinnar um þvermál röranna.
Þykktin yfir hitalögnum á að vera >35 mm til að minnka hættu á sprungum. Hita skal ekki hleypa á hitakerfið fyrr en eftir þrjár vikur.
Þegar hita er hleypt á hitakerfið á hitinn á því ekki að vera meira en
10° C hærri en hitinn á gólfinu. Eftir það má hækka hitann í skrefum
um 5° C á dag uns hámarkshita er náð. Eftir það er hitinn lækkaður aftur um 5° C á dag. Þetta verklag minnkar spennur í gólfinu og minnkar þar af leiðandi hættu á sprungum.
Aðvörun: Ef þeim aðferðum sem hér er lýst er ekki fylgt geta skemmdir af ýmsum toga komið fram sem framleiðandi er ekki ábyrgur fyrir: léleg binding, sprungur í gólfílögn, aflögun, sprungur í flísum sem límdar eru á gólfílögn, léleg binding við parket sem límt er á gólfílögn, aflögun parkets vegna of hás raka í efninu o. fl.
Sementsbundin gólfílagnarefni eru mjög basísk. Fylgja skal öllum reglum um öryggi við notkun efnisins. Forðast skal að efnið komist í snertingu við húð eða augu. Ef slík tilvik koma upp skal skola vel með hreinu köldu vatni. Komist efnið í snertingu við augu skal leita ráðlegginga læknis.
Sjá nánari upplýsingar