Sérhönnuð steypa
Steypusamsetning hefur mikil áhrif á eiginleika ferskrar og harðnaðrar steypu. Við erum með þekkingu og reynslu frá ýmsum spennandi verkefnum. Þess vegna getum við boðið upp á sérlausnir fyrir ýmsar aðstæður. Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi um sérhannaða steypa sem við framleiðum:
Alverk 95 steypa
Ef ending skiptir máli getur steypa samkvæmt Alverk 95 reglugerðinni verið lausn sem hentar þér vel.
Granítsteypa
Granít-steypa er hágæðasteypa frá Steypustöðinni. Við framleiðslu hennar eru aðeins notuð innflutt CE-merkt granít fylliefni sem eru mjög hörð og þétt í sér. Vegna eiginleika fylliefnanna er granít-steypa mjög endingargóð.
Hástyrkleika steypa
Notuð þar sem álagið er mikið eða þrýstistyrksflokkur > C50/60
Léttsteypa
Almennt er rúmþyngd steypu > 2250 kg/m3, en það er hægt að framleiða steypu sem er miklu léttari. Þar að auki er eiginleiki hennar til einangrunar miklu betri en í hefðbundinni steypu.
Lituð steypa
Steypa getur verið meira en bara grá. Hægt er að fá hvíta, svarta, rauða steypu og næstum allt þar á milli. Fáðu ráðgjöf hjá gæða og þróunardeild okkar.
Neðansjávarsteypa
Stundum er nauðsynlegt að steypa undir vatnsyfirborði, þá er neðansjávarsteypan okkar rétta lausnin.
Sjálfpakkandi steypa
Það þarf að titra alla steypu, nema sjálfpakkandi steypu. Það er kostur ef það er erfitt eða ekki hægt að koma víbrator í steypuna. Í mótum sem eru flókin, rennur steypan sjálf út í hvert horn og fyllir mótin mjög vel.
Slitþolin steypa
Þar sem slitálag er mikið mælum við með okkar slitþolnu steypu sem er samansett úr þéttum og sterkum fylliefnum.
Trefjasteypa
Með stál eða polypropylen trefjum, þegar beygjutogþol eða togþol skiptir máli.
Vatnsþétt steypa
Kjallaraveggir sem eru í snertingu við grunnvatn eiga að vera vatnsþéttir. Þú getur framkvæmt verkefnið með vatnsþéttri steypu frá okkur.