Granítsteypa
Granít-steypa er hágæðasteypa frá Steypustöðinni. Við framleiðslu hennar eru aðeins notuð innflutt CE-merkt granít fylliefni sem eru mjög hörð og þétt í sér. Vegna eiginleika fylliefnanna er granít-steypa mjög endingargóð.
Kostir:
Minna vatnsinnihald – hraðari þornun: Í hverjum m3 af granít-steypu frá Steypustöðinni er tæplega 80 lítrum minna af vatni en í hefðbundinni steypu. Þetta þýðir að í 100 m2 einbýlishúsi er tæplega 3.000 lítrum minna vatn ef notuð er granít-steypa og þornun verður því mun hraðari. Vegna þess að granít-steypan þornar hraðar en hefðbundin steypa eru minni líkur á að myglusveppur nái að myndast.
Minni rýrnun:
Magn fínefna er minna en í hefðbundinni steypu og þess vegna þarf minna vatn í granít-steypuna og því verður rýrnunin minni sem dregur verulega úr sprunguhættu.
Minni vatnsupptaka:
Granít-steypa er mjög þétt og tekur því mun minna vatn í sig og þarfnast því mun minna viðhalds.
Betra veðrunarþol:
Granít-steypa stenst íslenskt veðurfar betur en hefðbundin steypa. Frost, snjór og rigning hefur hverfandi áhrif á steypuna.
Meira þrýstiþol:
Vegna þess hve granít-steypa er þétt, þolir hún mun meira álag en hefðbundin steypa.
Meira slitþol:
Vegna þess hve granít fylliefnin eru sterk og þétt í sér hentar granít-steypa mjög vel þar sem mikið álag er til staðar.