Neðansjávarsteypa
Stundum er nauðsynlegt að steypa undir vatnsyfirborði, þá er neðansjávarsteypan okkar rétta lausnin. Í neðansjávarsteypu notum við Rescon T, sem er sérhannað þykkingarefni frá Rescon Mapei. Með neðansjávarsteypu er hægt að steypa í vatni eða í mikilli rigningu. Steypan helst saman og lítil sem engin sementsefja skolast út. Samt er hægt að vera með hátt sigmál. Vatn er áfram tært við niðurlögn steypunnar, það þýðir að áhrif á t.d. sjón kafarans eða á neikvæð áhrif á lífríki er minnkað. Neðansjávarsteypu er hægt að fá í þrýstistyrksflokkum frá C35/45.
Þrýstistyrkur: >35 MPa
Fjaðurstuðull: >26 Gpa
Rúmþyngd: ~2300 kg/m3
Áreitisflokkur: XS2 eða eftir umhverfi
Kornastærð: 0-32 mm
V/S tala: < 0,40