Slitþolin steypa
Á iðnaðarsvæðum er slit oft mikið vegna t.d. álags frá vinnuvélum. Þar hentar hefðbundin steypa ekki nógu vel. Ef minna slit er, er mikilvægt að velja rétta steyputegund. Til að ná fram góðu slitþoli notum við sér fylliefni sem eru m.a. líka notuð við framleiðslu á malbiki. Kornadreifing hefur mikil áhrif á slitþol og magn fínefna á því að vera < 450 kg/m3. V/S tala ræðst af slitþolsflokki, eftir því sem v/s talan er lægri þolir steypan betur slit. Til að auka endingu er hægt að bæta við t.d. stáltrefjum. Þær draga úr sprunguhættu og auka slitþol steypunnar líka. Aðhlynning er mjög mikilvæg eftir niðurlögn til að ná fram hámarksgæðum á yfirborði steypunnar. Við hönnum slitþolna steypu eftir notkunarstöðum.
Þrýstistyrkur: >35 MPa
Fjaðurstuðull: >30 GPa
Rúmþyngd: ~2300 kg/m3
Áreitisflokkur: XC4 eða eftir umhverfi
Slitþol: ≤ 20 mm (wide wheel test)
Kornastærð: 0-16 mm
Fylliefni: Granít