Um okkur
Steypustöðin ehf. er einkahlutafélag stofnað 1947 og hefur því starfað í yfir 60 ár. Á þeim tíma hefur hún framleitt steypu í fjölda stórbygginga, íbúðarhúsa og fjölmargar brýr svo dæmi séu tekin. Steypustöðin ehf. leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum ávallt trausta og góða þjónustu á hagkvæmu verði, enda hefur fyrirtækið verið í fararbroddi í íslenskum byggingariðnaði frá upphafi.
Steypustöðin ehf. framleiðir steinsteypu í mannvirki af öllum stærðum og gerðum, auk þess sem húsbyggjendum býðst mynstursteypa í stéttir og stíga, bæði lituð og ólituð. Reynslan sýnir að steypan frá Steypustöðinni ehf. hefur staðist tímans tönn með sóma og hefur viðhaldskostnaður verið í lágmarki. Um það vitna fjölmargir ánægðir viðskiptavinir og yfir 3 milljónir rúmmetra af steinsteypu í íslenskum mannvirkjum. Það segir sína sögu að opinberir aðilar og stórfyrirtæki hafa í yfir 50 ár treyst Steypustöðinni ehf. fyrir framleiðslu á steypu í fjölmargar viðamiklar stórbyggingar hér á landi.
Í dag rekur Steypustöðin ehf. 21 steypubíla og 7 steypudælur.
Steypustöðin okkar er mjög fullkomin og er öll framleiðslan tölvustýrð.
Nýlega opnaði Steypustöðin ehf. vöruhús við Malarhöfða 10 í Reykjavík. Er það liður í að útvíkka starfsemina og þjónusta viðskiptavininn enn betur með því að bjóða upp á bestu efni til múrverks og annars sem tengist starfsemi Steypustöðvarinnar.
Steypustöðin ehf. hefur rekið eigin rannsóknarstofu frá upphafi sem heldur uppi stöðugu gæðaeftirliti á framleiðslu fyrirtækisins. Auk þess er fyrirtækið með samning við Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins um óháð eftirlit. Gæðaeftirlit og framleiðsla Steypustöðvarinnar ehf. uppfylla því ströngustu kröfur.
Steypustöðin ehf. leggur áherslu á að fylgjast vel með tækniþróun og býr ávallt yfir nýjustu tækni og tækjabúnaði hverju sinni. Það stuðlar að hámarks nýtingu steypunnar og tryggir viðskiptavinum vönduð og fagleg vinnubrögð.
Umboðsaðilar á landsbyggðinni:
Finnur ehf.
Óseyri 2
603 Akureyri
Sími: 897-1490
finnurhf@simnet.is
Plastiðjan Ylur ehf.
Miðási 43
700 Egilsstaðir
Sími: 471-1277
ylur1@simnet.is
Kubbur ehf.
Ártungu 8
Ísafirði
Sími: 894-6666
saevar@knh.is
Opnunartími Steypustöðvarinnar:
| Malarhöfði |
kl. 08:00-17:00 |
Skrifstofa |
| Malarhöfði |
kl. 08.00-18:00 |
Múrverslunin |
| Hringhella |
kl. 08:00-18:00 |
| Helguvík |
kl. 08:00-16:00 |
| Hrísmýri |
kl. 09:00-17:00 |
Steypu- og helluafgreiðsla |