Bleika slaufan og
Steypustöðin 8. okt. 2010
Steypustöðin tekur þátt í bleika deginum með því að skreyta steypu-, dælu- og fyrirtækisbíla sína með
bleikum slaufum til styrktar átakinu Bleiku slaufunni.
Einnig eru starfsmenn Steypustöðvarinnar hvattir til að koma
með eitthvað bleikt eða bleikklæddir í vinnu föstudaginn 8. október, en
meirihluti starfsmanna eru karlmenn.
Það er fyrirtækinu ánægja að taka þátt í þessu frábæra
framtaki og sendir öllum sem að því standa og þjóðinni allri baráttukveðjur.



