
Fjölskylduhjálp fær 200 þúsund krónur
Steypustöðin ehf hefur ákveðið að senda ekki jólakort til viðskiptavina sinna fyrir þessi jól. Sú upphæð sem varið hefur verið til jólakortasendinga verður nú nýtt með öðrum hætti. Samtals er um að ræða 200 þúsund krónur. Það var starfsfólk Steypustöðvarinnar sem tók ákvörðun um hvert fjármunirnir myndu renna. Niðurstaðan varð að senda Fjölskylduhjálp Íslands þessa fjármuni með þeirri einlægu von að þetta framlag auðveldi þeirra mikilvæga starf.
Um leið sendir Steypustöðin hlýjar jóla- og nýárskveðjur til allra íslendinga með von um að bjartari tímar séu framundan á nýju ári.
Ásgerður Jóna Flosadóttir framkvæmdastjóri Fjölskylduhjálpar veitti fjárframlaginu viðtöku og sagði við það tækifæri:
„Hjartans þakkir fyrir stuðninginn við Fjölskylduhjálp Íslands. Þessi styrkur kemur sér virkilega vel. Með hlýjum kveðjum til ykkar allra.”