Hvítárbrú

Önnur uppsteypun Hvítárbrúarinnar

Dagana 1. og 2. september var seinni steypa, þ.e. 1464 m³ steyptir í Hvítarbrúna. Var svipað ferli í gangi og við þá fyrri, en að verkinu núna komu 23 steypubílar, 20 frá Steypustöðinni og 3 voru fengnir hjá BM Vallá ásamt bílstjórum. Tvær dælur voru notaðar við dælinguna.

Á Selfossi voru framleiddir 1314,5 m³ en í Reykjavík 150 m³ og var þessi steypa keyrð í 196 ferðum.

Steypuframleiðsla hófst í báðum stöðvum kl. 06:30 þann 1. september og var síðasti bíll lestaður frá Selfossi kl. 14:00 þann 2. september.

Á steypustað var einmuna veðurblíða allan tímann og gekk allt eins og best var á kosið.


Myndirnar tala sínu máli







Fyrsta uppsteypun Hvítárbrúar


Föstudaginn 6. nóvember og fram á laugardag þann sjöunda var farið í það stóra verkefni hjá Steypustöðinni að keyra og dæla steypu í fyrri hlutann á dekk brúarinnar yfir Hvítá við Flúðir. Verkkaupi er Jáverk ehf sem sér um byggingu brúarinnar.  Að steypustað, sem er vestan megin Hvítár, eru alls 180  km frá Reykjavík fram og til baka og um 90 km frá Selfossi fram og til baka. Alls voru eknar  255  ferðir, 115 úr Reykjavík og 140 frá Selfossi.  Keyrt var á  22 bílum frá Steypustöðinni og 10  voru leigðir frá BM Vallá. Mikill fjöldi manna kom að verkinu eða allt að 120 manns. Fjöldi rúmmetra var að verki loknu alls 1905 m3 sem keyrðir voru á milli staða þennan sólarhring. 

Verkefnið byrjaði kl. 04:00 að morgni föstudags og var keyrt á vöktum til kl. 07:00  á laugardagsmorgninum. Þarna var að verki einvalalið manna sem eiga mikið hrós skilið. Vonum við og vitum að þetta verður mikil samgöngubót fyrir íbúa sveitarinnar sem og þá fjölmörgu ferðamenn sem ferðast um uppsveitir Árnessýslu. Óskum við hjá Steypustöðinni þeim til hamingju með þessa stórkostlegu samgöngubót þegar hún kemst í gagnið á vordögum og erum stolt af að hafa tekið þátt í þessu verkefni.















Aðgerðastika


Hafðu samband - Sími: 440 0400

Sölustaðir fyrir hellur:

Reykjavík
Malarhöfða 10
Hafnarfirði
Hringhellu 2
Helguvík
Berghólabraut 9
Selfossi
Hrísmýri 8
Akureyri
Óseyri 2, Finnur ehf.
Ísafjörður
Ártungu 8, Kubbur ehf.
Egilsstaðir
Miðási 43, Plastiðjan Ylur ehf.

Meira um sölustaðina.

Viðhaldslisti
Bæklingur (PDF 1 mb)
Skoða bækling
Múrkerfi
Bæklingur (PDF 1,5 mb)
Skoða bækling
Steypubæklingur
Bæklingur (PDF 0,5 mb)
Skoða bækling
Hellur & garðlausnir
bæklingur (pdf 13,5 mb)
Skoða bækling
Lausnir fyrir bílaplön
bæklingur (pdf 696 kb)
Skoða bækling
Spikma kantsteinar
Bæklingur (PDF 0,7 mb)
Skoða bækling
Recon Stoðveggjakerfi
Bæklingur (PDF 0,6 mb)
Skoða bækling
Skemmtun fyrir börnin!
Smelltu hér

  Opnunartímar:

  Reykjavík
  Malarhöfða 10
  Múrverslun

kl. 8:00 - 17:00
kl. 8:00 - 18:00
  Hafnarfirði
  Hringhellu 2

kl. 8:00 - 18:00
  Helguvík
  Berghólabraut 9

kl. 8:00 - 16:00
  Selfossi
  Hrísmýri 8

kl. 9:00 - 17:00
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is