Skil á vöru
- Vöru fæst einungis skilað gegn framvísun reiknings.
-
Skilafrestur er 60 dagar frá afhendingu vörunnar skv. dagsetningu afhendingarseðils. Eftir þann tíma áskilur Steypustöðin ehf. sér rétt til að hafna móttöku vörunnar.
-
Ef afgangsvara eða tóm vörubretti eru sótt til viðskiptavinar er lagt á sérstakt akstursgjald skv. gjaldskrá Steypustöðvarinnar ehf.
-
Afgangsvara er einungis tekin til baka ef gengið er snyrtilega frá henni á bretti sem aðgengileg eru fyrir ökutæki okkar. Steypustöðin ehf. áskilur sér rétt til að hafna móttöku afgangsvara séu þau ekki aðgengileg á bretti fyrir ökutæki.
-
Fyrir þær afurðir sem ekki er skilað í heilum umbúðum er tekið sérstakt umsýslugjald sem er 8 % af verði þeirrar vöru sem skilað er.
-
Steypustöðin ehf. tekur ekki aftur afurðir sem skemmast í meðförum viðskiptavinar. Einungis er hægt að skila söluhæfri afurð og ekki er tekið á móti afsagi, umbúðaplasti eða öðru slíku.
-
Hellum og steinum er hægt að skila svo framarlega sem kröfur seljanda um söluhæfa afurð eru uppfylltar. Þeim steinum sem seldir eru saman í mismunandi stærðum er hægt að skila svo lengi sem þeir eru í heilum settum. Hafi umræddar vörur verið sér litablandaðar að ósk viðskiptavinar þá áskilur Steypustöðin ehf. sér rétt til að hafna því að taka slíkar vörur til baka. Hið sama á við um vörur sem eru sérútbúnar fyrir viðskiptavini.
-
Afgangsvara er einungis tekin til baka ef gengið er frá henni á bretti sem aðgengileg eru fyrir útkeyrslubíla. Ef endurraða þarf á bretti eða safna saman vöru á staðnum er sú vinna reikningsfærð sérstaklega skv. gjaldskrá Steypustöðvarinar ehf.
-
Eyjabergi, Álfabergi, Hleifabergi og Kötlubergi er aðeins hægt að skila í heilum settum, þ.e. að ekki sé einungis búið að taka ákveðnar stærðir steina úr upphaflegu steinasetti.
-
Vörubretti sem varan er afhent á og stórsekkir (pokar) eru eign Steypustöðvarinnar ehf. og ber að afhenda þau til baka eftir að notkun þeirra lýkur. Viðskiptavini er óheimilt að ráðstafa eða nota vörubretti og stórsekki með öðrum hætti en fyrir vörur Steypustöðvarinar ehf. Skemmd eða ónýt vörubretti og stórsekkir eru ekki tekin til baka.
Sérvara
Verð á vörum er staðgreiðsluverð með 24.5 % virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram. Steypustöðin ehf. áskilur sér rétt til að breyta verði fyrirvaralaust.
Verð á sérvöru er háð breytingum á gengi EUR við dagsetningu tilboðs og miðast endanlegt kaupverð við sölugengi EUR á tollafgreiðsludegi eða afhendingardegi eftir því hvort gengisviðmiðið er hærra.
Verði breytingar á magni verða samhliða breytingar á verði.
Greiðslumáti fer eftir almennum viðskiptakjörum Steypustöðvarinar ehf. nema annað sé tekið fram.
Afgreiðslufrestur á sérvöru er 6-8 vikur frá pöntun.
Athuga ber að uppgefinn afgreiðslutími getur breyst um 1-2 vikur vegna flutningsaðstæðna.